213 milljarðar í skatt

Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga nemur 25,3 milljörðum króna og hækkar um …
Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga nemur 25,3 milljörðum króna og hækkar um tæplega 55% milli ára. mbl.is/Kristinn

Samanlögð álagning tekjuskatta og útsvars fyrir árið 2008 nemur 213,6 milljörðum króna og hækkar um 15,1% frá fyrra ári. Álagðir tekjuskattar til ríkissjóðs skiptast í tekjuskatt annars vegar og fjármagnstekjuskatt hins vegar en útsvarið er tekjustofn sveitarfélaga.

Skv. upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu nemur álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga 25,3 milljörðum króna og hækkar um tæplega 55% milli ára. Greiðendur fjármagnstekjuskatts eru tæplega 99 þúsund og fjölgar um rúmlega 6% milli ára. Söluhagnaður skýrir 58% af skattstofni fjármagnstekjuskatts en arður og vaxtatekjur tæpan fimmtung hvor liður. Hlutur fjármagnstekjuskatts af tekjusköttum einstaklinga til ríkissjóðs jókst verulega og nam 22,6% en hlutfallið var 16,6% í fyrra.

Almennan tekjuskatt, samtals 86,4 milljarða króna, greiða 178.270 einstaklingar, eða 67% framteljenda og hefur það hlutfall lækkað nokkuð frá fyrra ári. Skattgreiðsla á hvern gjaldanda hefur hækkað um 3,8 % milli ára meðan tekjuskattstofninn hækkaði um 10,5% á hvern framteljanda að meðaltali. Þetta stafar af lækkun skatthlutfallsins úr 23,75% í 22,75% í upphafi árs 2007, auk þess sem persónuafsláttur hækkaði um 10,75%.

Heildarfjöldi framteljenda við álagningu árið 2008 er 264.766. Fjölgun milli ára var 4,3%, aðeins litlu minni en í fyrra. Eins og þá er skýringin mikill aðflutningur. Rúmlega 33 þúsund framteljendur, 12,5% af heild, er með erlent ríkisfang.

Útsvar til sveitarfélaga nemur alls 101,9 milljörðum króna og hækkar um 16,8% frá fyrra ári. Gjaldendur útsvars eru 256.777 og fjölgar um 4,4% milli ára. Álagt útsvar á hvern gjaldanda hækkar samkvæmt því um 11,8% milli ára en meðalútsvarshlutfall breyttist ekki. Hækkunin hefur aldrei áður orðið jafn mikil að óbreyttri útsvarsprósentu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka