Ekkert hefur verið flogið frá Bakka til Vestmannaeyja í dag vegna veðurs en þar höfðu 350 manns átt pantað flug til þess að vera með síðasta kvöldið á þjóðhátíð. Hins vegar hefur verið flogið frá Reykjavík í dag og Herjólfur kom með talsvert af fólki síðdegis.
Lögregla áætlar að um 13 þúsund manns hafi verið í Herjólfsdal í gærkvöldi sem er um 3000 fleira en voru á þjóðhátíð í fyrra.