Talið er að um fjögur þúsund manns hafi lagt leið sína í Laugardalinn í Reykjavík í kvöld þar sem Stuðmenn, Nýdönsk og Ingó og veðurguðirnir komu fram á tónleikum. Veðrið setti sinn svip á tónleikana en fram eftir kvöldi rigndi mikið. Á tíunda tímanum hafði þó stytt upp að mestu og var góð stemmning í Fjölskyldu og húsdýragarðinum.
Valgeir Guðjónsson kom fram með Stuðmönnum og söng eitt lag með sveitinni.