„Þetta er stærsti kór Íslandssögunnar," sagði Árni Johnsen þegar hann hafði stýrt brekkusöng á þjóðhátíð Vestmannaeyja í kvöld. Talið er að rúmlega 13 þúsund manns hafi sungið með Árna í Herjólfsdal.
Að sögn þjóðhátíðargesta, sem mbl.is ræddi við í kvöld, var mikil stemmning í Herjólfsdal og var það mál manna að aldrei hefði verið jafn mikið af fólki í brekkunni eins og í kvöld.