Borgarráð hefur að tillögu borgarstjóra ákveðið að skipa fimm manna starfshóp til að ljúka gerð siðareglna fyrir kjörna fulltrúa Reykjavíkurborgar. Tillagan var samþykkt samhljóða á fundi borgarráðs í morgun.
Samstaða hefur ríkt um mikilvægi siðareglna fyrir kjörna fulltrúa á vettvangi borgarstjórnar á kjörtímabilinu. Skemmst er að minnast þess að stjórnkerfisnefnd Reykjavíkurborgar var falið að hafa umsjón með staðfestingu siðareglna og taka afstöðu til hugmynda um siðanefnd vorið 2007.
Í kjölfar skoðunar var ákveðið að skipa ritstjórn um starfs- og siðareglur síðastliðið haust. Sú nefnd náði ekki að ljúka vinnu sinni. Hins vegar liggja fyrir ýmis undirbúningsgögn og drög að siðareglum.
Lögð er áhersla á að vinnan starfshópsins taki mið af fyrirliggjandi gögnum og samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, Siðfræðistofnun Íslands og fleiri aðila.