Vilja ekki krónuna

Niðurstaða hagdeilda Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins er sú sama: krónan er ekki gjaldmiðill sem við verður unað til lengri tíma. Framámenn innan ASÍ og SA virðast einnig vera á einu máli um gjaldeyrismálin. Hvarvetna má heyra að krónan dugi ekki lengur, hún sé of lítill gjaldmiðill.

Beggja vegna kjarasamningaborðsins vilja menn að upptaka evru með tvíhliða samningum við Evrópusambandið verði skoðuð alvarlega. Það er að farin verði leið sem stundum hefur verið kennd við Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. Einn viðmælandi Morgunblaðsins um þessi mál taldi víst að fyrsta svar Brüssel yrði þvert nei. Héldu menn hins vegar áfram að knýja dyra gæti sú afstaða breyst. Skoðuðu menn stöðuna í stofnanaverki ESB og pólitíska stöðu frekari Evrópusamruna um þessar mundir sæist að endanlegt svar gæti orðið á aðra lund. Gangi það ekki upp eru hvorug samtökin algerlega fráhverf ESB-aðild.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert