Bílvelta í Hrútafirði

Bifreið valt í Hrútafirði skammt frá bænum Brautarholti um kl. 11 í dag. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi var tvennt í bifreiðinni og sluppu þau án teljandi meiðsla. Krapi var á veginum og er talið að ökumaðurinn hafi misst stjórn á ökutækinu í hálku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert