Ætla að staðla jafnréttismálin

Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, undirritaði samkomulag með fulltrúum ASÍ og SA …
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, undirritaði samkomulag með fulltrúum ASÍ og SA um jafnréttismál. mbl.is/Golli

Búa á til staðal, sem notaður verður til að sannreyna hvort launa- og starfsmannastefna stofnana og fyrirtækja samræmist stefnu um launajafnrétti kynja og jafnrétti við ráðningar og uppsagnir. 

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa farið þess á leit við Staðlaráð Íslands að það hafi umsjón með gerð staðalsins. Jóhanna ritaði undir samning um þetta, með Grétari Þorsteinssyni fráfarandi forseta ASÍ og Hannesi G. Sigurðssyni aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins nú eftir hádegið.

Atvinnurekendur sem uppfylla skilyrði staðalsins geta síðan fengið formlega vottun fyrir því að launa- og starfsmannastefna þeirra samræmist lögum um jafnrétti kynjanna.

Jóhanna Sigurðardóttir sagði eftir undirritunina að þetta væri afar mikilvægur staðall, sem byggðist á evrópskum reglum. Hún sagði staðalinn mikilvægt innlegg í jafnréttismálin en enga endastöð. „Ég fagna mjög því sem hér var að gerast og er sannfærð um að það mun skila okkur áleiðis til þess að ná fram launajafnrétti kynjanna,“ sagði Jóhanna.

Í tilkynningu frá ASÍ um þetta segir:

„Í lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla sem samþykkt voru 18. mars síðastliðinn er ákvæði til bráðabirgða um að félags- og tryggingamálaráðherra skuli, í samvinnu við samtök aðila vinnumarkaðarins, sjá til þess að þróað verði sérstakt vottunarkerfi á framkvæmd stefnu um launajafnrétti og framkvæmd stefnu um jafnrétti við ráðningar og uppsagnir. Bókun sama efnis fylgdi kjarasamningum landssambanda Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins 17. febrúar síðastliðinn. 

Viðræður hafa átt sér stað að undanförnu milli fulltrúa félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um framkvæmd bráðabirgðaákvæðis laganna og bókunarinnar. Niðurstaðan varð sú að fela Staðlaráði Íslands umsjón með gerð staðalsins og er miðað við að hann verði tekinn í notkun í byrjun árs 2010.

Vonir standa til þess að staðallinn verði atvinnurekendum stuðningur og hvatning til þess að uppfylla ákvæði laga um jafnan rétt karla og kvenna. Þeir muni sjá ávinning í því að fela óháðum vottunaraðilum úttekt á launa- og starfsmannastefnu sinni á kerfisbundinn hátt því þannig verði hafið yfir allan vafa að þeir uppfylli ákvæði laganna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka