„Ég virði hans ákvörðun en mun sakna hans,“ segir Siv Friðleifsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins um afsögn Guðna Ágústssonar. „Hann var mjög vinsæll og öflugur stjórnmálamaður og mikill drengskaparmaður og það var gaman að vinna með honum.“
„Hann var heiðarlegur í hvívetna svo ég sé mikið á eftir honum en ég virði hans ákvörðun og vona að honum gangi vel í öllu sínu í framhaldinu.“