Formlegri leit á Skáldabúðaheiði hætt

Formlegri leit að rjúpnaskyttunni sem saknað hefur verið í tæpa viku, hefur verið frestað vegna aðstæðna á leitarsvæðinu. Snjóföl er yfir öllu svæðinu og mjög erfitt að leita. Áfram verður fylgst með aðstæðum og farið til leitar eftir því sem þær þykja gefa tilefni til.

Um 200 björgunarsveitarmenn og sjálfboðaliðar víðsvegar að af landinu hafa, án árangurs, leitað frá því í birtingu í morgun að Trausta Gunnarssyni sem týndist við rjúpnaveiðar á Skáldabúðaheiði þann 29. nóvember s.l.

Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi segir að aðstæður til leitar hafi verið góðar í morgun. Þær hafi hins vegar versnað vegna snjómuggu þegar kom fram yfir hádegið.

Björgunarsveitafólkið kom af nær öllu landinu, eða frá Akureyri að Höfn í Hornafirði. Notaðir voru hundar við leitina, sem og hestar en gangnamenn úr sveitinni sem þekkja vel til, tóku virkan þátt. Einnig voru leitarmenn á hestum, fjórhjólum og torfæruhjólum.

Oddur Árnason segir að búið sé að leita á 70 til 80 ferkílómetra svæði. Sum svæði sé búið að kemba allt upp í fimm sinnum.

Einn maður slasaðist þegar hann datt í skriðum og er talið að hann sé úlnliðsbrotinn.

Eins og áður segir hefur formlegri leit nú verið hætt. Engin von er talin til þess að Trausti geti verið á lífi. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú uppkomin börn. Aðstandendur hans vilja koma á framfæri þakklæti sínu til leitarmanna fyrir þeirra óeigingjörnu vinnu við erfiðar aðstæður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert