Jóhanna nýtur mests trausts

Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra. mbl.is/ Árni Sæberg

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, nýtur mikils trausts hjá flestum eða 64% Íslendinga, samkvæmt könnun Markaðs- og miðlarannsókna, MMR. Þar á eftir kemur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem 44% segjast bera mikið traust til. Næst kemur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, sem 40% segjast bera mikið traust til. 78% aðspurðra segjast bera lítið traust til Davíðs Oddssonar, seðlabankastjóra og Árna M. Mathiesen, fjármálaráðherra.

Jóhanna Sigurðardóttir er jafnframt sá einstaklingur sem fæstir segjast bera lítið traust til en 14% aðspurðra sögðust bera
lítið traust til hennar. 28% sögðust bera lítið traust til Ólafs Ragnars Grímssonar og 33% sögðust bera lítið traust til
Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.

Allir aðrir þeirra tuttugu og tveggja einstaklinga sem spurt var um njóta lítils trausts hjá fleirum en segjast bera mikið traust til þeirra.

Þannig eru 78% sem segjast bera lítið traust til Davíðs Oddssonar,
seðlabankastjóra og Árna M. Mathiesen, fjármálaráðherra, 68% segjast bera lítið traust til Björns Bjarnasonar, dóms- og kirkjumálaráðherra, 67% segjast bera lítið traust til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eiganda Baugs, og Valgerðar Sverrisdóttur, formanns Framsóknarflokksins.

57% segjast bera lítið traust til Gunnars Páls Pálssonar, formanns VR, og 52% segjast bera lítið traust til Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Nýja Glitnis. Aðrir sem spurt var um njóta lítils trausts hjá 38% til 50% svarenda.

Formenn Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingar eru meðal þeirra sem njóta mests trausts samkvæmt könnuninni en 31% til 33% segjast bera mikið traust til þeirra þriggja.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert