Sextán ára piltur var handtekinn í Breiðholti skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld en hans hafði verið leitað frá því um kvöldmatarleytið.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um að ungur maður með skotvopn væri á ferðinni í Breiðagerði í Reykjavík. Fjölmennt lið lögreglunnar leitaði að piltinum og naut við það aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Hann fannst svo hjá ættingjum sínum í Breiðholti en þeir gerðu lögreglu viðvart og gaf pilturinn sig fram mótþróalaust. Hann var síðan færður á viðeigandi stofnun.
Pilturinn, sem hefur áður komið við sögu hjá lögreglu, var með hlaðna skammbyssu í fórum sínum en hana hafði hann tekið ófrjálsri hendi. Faðir piltsins er skráður fyrir byssunni og hefur fyrir henni tilskilin leyfi. Unnið er að rannsókn málsins.