Bregðast við grein forstjóra Teymis

Teymi.
Teymi.

Samkeppniseftirlitið hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af grein Árna Péturs Jónssonar, forstjóra Teymis, sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Í grein Árna Péturs er varpað fram spurningum um stjórnsýslu Samkeppniseftirlitsins í máli því sem nú er til meðferðar hjá eftirlitinu gagnvart Teymi. 

„Sérstaklega eru gerðar athugasemdir við stjórnsýsluframkvæmd eftirlitsins við afgreiðslu á samruna IP fjarskipta (Hive) og Ódýra símafélagsins, sem eftir sameiningu starfar undir merkjum Tals.  Af þessu tilefni vill Samkeppniseftirlitið taka eftirfarandi fram:

Í greininni er því haldið fram að Samkeppniseftirlitið hafi óskað eftir því að fundir vegna hins upphaflega samrunamáls væru „non-meetings" eða fundir sem formlega hefðu aldrei verið haldnir.  Rétt er að Samkeppniseftirlitið átti fundi með samrunaaðilum í tengslum við tilkynningu þeirra á framangreindum samruna.  Sneri forstjóri Teymis sér upphaflega til Samkeppniseftirlitsins og óskaði eftir trúnaðarfundi. Engin ósk var um það af hálfu Samkeppniseftirlitsins að fundir með samrunaaðilum væru „non-meetings".  Þvert á móti voru þeir liður í athugun eftirlitsins.

Einnig kemur fram í greininni að forstjóri Teymis hafi verið beðinn um að taka til baka bréf frá félaginu til Samkeppniseftirlitsins og að stofnunin liti svo á að bréfið hefði aldrei borist.  Hið rétta er að snemma í ferlinu lýsti Samkeppniseftirlitið því sjónarmiði sínu að samruninn kynni að hamla samkeppni á fjarskiptamarkaði.  Í framangreindu bréfi Teymis var því hafnað að Samkeppniseftirlitið hefði forsendur til íhlutunar og óskað eftir frekari rökstuðningi stofnunarinnar fyrir slíkri íhlutun. 

Á fundi með Teymi voru sjónarmið eftirlitsins rökstudd nánar. Fór svo að Teymi féllst á að hlýta skilyrðum sem tryggja áttu samkeppnislegt sjálfstæði Tals.  Undirrituðu samrunaaðilar sátt í málinu, sem lá til grundvallar ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 36/2008. Með því að fallast á að hlýta skilyrðum féllust samrunaaðilar eðli málsins samkvæmt einnig á sjónarmið Samkeppniseftirlitsins um samkeppnishamlandi áhrif samrunans. Þar af leiðandi dró Teymi til baka fyrri andmæli sín.  Rétt er að taka fram að umrætt bréf Teymis er hluti af gögnum málsins,“ segir m.a. í yfirlýsingu Samkeppniseftirlitsins sem lesa má í heild sinni á vef eftirlitsins.  

Yfirlýsing vegna umfjöllunar um afskipti Samkeppniseftirlitsins af málefnum Teymis og Tals

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert