Ásta R. Jóhannesdóttir, félagsmálaráðherra og Nancy Allan, ráðherra atvinnu og innflytjendamála í Manitoba í Kanada, hafa gert samkomulag um atvinnumöguleika fyrir Íslendinga í Manitoba.
Samkomulagið verður kynnt nánar síðar í dag en Allan er stödd hér á landi. Hún hefur einnig m.a. átt fundi með fulltrúum verkalýðsfélaga.
Stjórnvöld í Manitoba höfðu frumkvæði að bjóða Íslendingum vinnu tímabundið eða til langframa og höfðu af því tilefni samband við ræðismann Íslands í Winnipeg.