Almenni lífeyrissjóðurinn hefur fallið frá því að innheimta kostnað vegna útborgunar séreignarsjóðs við sérstakar aðstæður. Þóknunin átti að nota til að mæta kostnaði við útborgunina sem felst m.a. í breytingu á tölvukerfum og þóknunar við sölu verðbréfa.
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu nú hefur sjóðurinn hins vegar hætt við að innheimta slíka þóknun, að því er segir í tilkynningu.