Jón Ólafsson hefur stefnt breska ríkinu vegna mistaka breska sendiráðsins á Íslandi í tengslum við meiðyrðamál hans gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, prófessor við Háskóla Íslands, árið 2004. Jón krefst allt að sjötíu milljóna króna.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
„Ég tók þá ákvörðun að það væri ekki lengur þess virði að sækja
málið á Hannes Hólmstein. Ég er búinn að vinna málið fyrir dómstólum í
Englandi sem klikka vegna tæknilegs atriðis. Eins er þríeykið Davíð
Oddsson, Kjartan Gunnarsson [fyrrverandi framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins] og Hannes liggjandi menn. Maður sparkar ekki í
liggjandi menn," segir Jón Ólafsson athafnamaður, í samtali við Fréttablaðið.
Jón höfðaði meiðyrðamál fyrir breskum dómstólum árið 2004 vegna ummæla Hannesar haustið 1999 sem voru vistuð á vefsvæði Hannesar hjá Háskóla Íslands. Þar vændi Hannes Jón meðal annars um að hafa efnast á glæpastarfsemi. Jón gat sýnt fram á það fyrir dómi að hann hefði orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna skrifa Hannesar.
Dómur féll sumarið 2005 þar sem Hannes var dæmdur til að greiða Jóni tæplega tuttugu milljónir króna að núvirði í bætur og málskostnað. Hannes áfrýjaði þessum dómi til yfirréttar í London, sem ógilti í desember 2006 dóm undirréttar með þeim rökum að stefna í málinu hefði ekki verið birt Hannesi samkvæmt íslenskum lögum. Hannes mótmælti því jafnframt að dómurinn yrði fullnustaður hér á landi en að kröfu Jóns gerði sýslumaðurinn í Reykjavík fjárnám fyrir dómkröfunni í skuldabréfi sem Hannes hafði fengið vegna sölu á húseign sinni, samkvæmt Fréttablaðinu.