Íslandsbanki á ekki beinan hlut í GGE

Íslandsbanki
Íslandsbanki

Íslandsbanki á ekki beinan hlut í Geysi Green Energy, samkvæmt tilkynningu frá bankanum. Hins vegar eigi fagfjárfestasjóðurinn Glacier Renewable Energy Fund um 40% hlut í fyrirtækinu og tvo fulltrúa af sjö í stjórn fyrirtækisins. Íslandsbanki á innan við helmingshlut í sjóðnum á móti öðrum fagfjárfestum.

Kemur þetta fram í tilkynningu Íslandsbanka vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um málefni Geysis Green Energy og aðkomu Íslandsbanka að félaginu.

„Umræddur eignarhlutur var í eigu Glitnis og fluttist með öðrum innlendum eignum til Íslandsbanka í samræmi við neyðarlög sem sett voru í október 2008.

Þá skal einnig áréttað að hjá Íslandsbanka gilda afar strangar hæfisreglur um aðkomu starfsmanna og stjórnenda að einstaka málum sem bankinn fylgir í einu og öllu. Aðdróttanir um annað eru úr lausu lofti gripnar. Þá skal einnig áréttað starfsmenn Íslandsbanka hafa að sjálfsögðu haldið bankastjórn bankans upplýstri um aðkomu hans að málefnum Geysis Green Energy.

Íslandsbanki er viðskiptabanki Geysis Green Energy og vinnur náið með stjórnendum fyrirtækisins að fjárhagslegri endurskipulagningu þess en getur, eðli málsins samkvæmt, ekki tjáð sig að öðru leyti um málefni fyrirtækisins fremur en annarra viðskiptavina," að því er segir í tilkynningu frá Íslandsbanka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert