Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF LIF, er nú á leið á sjúkrahús, með manninn sem ökklabrotnaði upp á toppi Eskjunnar í morgun . Aðstæður voru erfiðar á slysstað en maðurinn var í miklum bratta. Því var brugðið á það ráð að flytja hann með þyrlu á sjúkrahús.
Björgunarsveitarmenn og slökkviliðsmenn voru komnir til mannsins á tólfta tímanum og er líðan hans eftir atvikum góð.