Stækkun Evrópusambandsins, og þar með aðildarumsókn Íslands, er á dagskrá fundar utanríkisráðherra aðildarríkjanna á mánudag. Össur Skarphéðinsson segir yfirgnæfandi meirihluta utanríkisráðherra aðildarríkja hafa tjáð sér með einum eða öðrum hætti stuðning við umsókn Íslands.
Carl Bildt utanríkisráðherra Svíþjóðar sagði á blaðamannafundi í morgun, þegar Össur afhenti umsókn Íslands, að af og frá væri að tengja umsóknina við Icesave-málið.
Samkvæmt upplýsingum frá sænska utanríkisráðuneytinu verður umsókn Íslands á dagskrá fundar ráðherraráðs á mánudaginn, en óvíst er að hún verði rædd þar. Ákvörðun um framhald umsóknarinnar þarf að vera tekin á slíkum fundi.
Össur Skarphéðinsson sagði í samtali við mbl.is að vissulega hefði verið ákveðinn draugagangur í kringum málið, þar sem einstaka þjóðir hefðu sett sig upp á móti umsókn Íslands og vísaði þar til ummæla utanríkisráðherra Hollands. Hann sagðist þó ekkert vita um hvort eða hvernig umsókn Íslands yrði afgreidd á fundinum á mánudag.
„En það er ljóst að við höfum yfirgnæfandi stuðning meðal mjög margra. Svíar, sem nú eru í forsæti Evrópusambandsins hafa sett málið fram af miklum krafti,“ sagði Össur. Fundarstjórn á mánudag er í höndum Svía. „Það hefur svo verið sérlega ánægjulegt að finna hve afdráttarlausan stuðning við höfum frá Bretum, hjá þeim er engin viðleitni nema síður væri til að beita Icesave á móti umsókninni.“
Össur hefur á undanförnum dögum rætt við utanríkisráðherra 23 aðildarríkja ESB, til að reyna að tryggja að umsóknin verði tekin fyrir á fundinum. Þar kveðst hann hafa fundið mikinn stuðning og jafnframt segir hann að það muni ekki vekja lukku ef menn telja að annarleg sjónarmið liggi að baki mótstöðu við umsókn Íslands.