Frækinn veiðihundur af labradorkyni hrakti innbrotsþjóf á flótta um miðja nótt meðan heimilisfaðirinn sem var einn heima lá skelfingu lostinn í rúminu og hlustaði á aðfarirnar. Einu merkin um mannaferðir eftir að hundurinn hafði unnið sitt verk var blóð á veröndinni og brotin hurðarlæsing.
Tíkin Tara Líf er margverðlaunaður veiðihundur en þetta er í þriðja skiptið sem hún hrekur burtu óboðna gesti. Aldrei hafa þeir þó verið komnir inn í húsið fyrr.
Lögreglan sagði heimilisföðurnum að morguninn eftir hremmingarnar hefði maður leitað til læknis í nágrenni höfuðborgarinnar með hundsbit á fæti. Hann bar því við að svartur úlfhundur hefði ráðist á sig við Þingvallavatn. Ekki liggur fyrir hvort þarna var kominn innbrotsþjófurinn en hann vildi ekki leggja fram kæru eða ræða atvikið nánar við lækninn.