Starfsmenn Landhelgisgæslunnar telja líklegast að olíubrák sem nýja flugvél Landhelgisgæslunnar fann á dögunum á Faxaflóa komi frá bandaríska varðskipinu Alexander Hamilton, en þýskur kafbátur sökkti skipinu 1942.
Starfsmenn Gæslunnar hafa aflað upplýsinga um skipin sem
talin eru koma til greina sem skipsflök á botni Faxaflóa. Skipin eru
bandaríska varðskipið Alexander Hamilton sem varð fyrir árás þýska
kafbátsins U-132 þann 29. janúar árið 1942 og olíuskipið Shirvan varð
fyrir árás þýska kafbátsins U-300 þann 10. nóvember 1944. Grunur um
skipsflak vaknaði eftir að eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar TF-Sif
flaug yfir svæðið þann 7. júlí sl. og greindi olíubrák með radar
flugvélarinnar sem m.a. er notaður við mengunareftirlit.
Í frétt á heimasíðu Landhelgisgæslunnar segir að olíuskipið Shirvan hafi verið nær þrisvar sinnum stærra en Alexander Hamilton
eða 6.017 tonn. Alexander Hamilton
var 2.216 tonn. Veður hafði að sjálfsögðu
áhrif á hvert skipin ráku eftir árásirnar en þegar veðurlýsingar eru
skoðaðar er talið líklegra að flakið sé Alexander Hamilton því
suðaustan átt var á svæðinu þegar Shirvan sökk og er því talið að
flakið liggi vestar í Faxaflóa.
Um málið eru þó skiptar skoðanir og ekki verður mögulegt að leiðrétta villur eða misskilning fyrr en skoðun með neðansjávarmyndavél staðfestir hvort flakið sé um að ræða.