Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins telur sig vera búið að ná tökum á eldi, sem, kviknaði í risi Höfða við Höfðatún síðdegis í dag. Allt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu hefur barist við eldinn og fjöldi fólks hefur aðstoðað við að bera málverk og aðra muni út úr húsinu.