Háspennulína 132 kV (kílóvolt) sem liggur um byggðir Borgarfjarðar er löskuð á móts við bæinn Norðtungu í Þverárhlíð í Borgarfirði. Leiðarar línunnar liggja yfir veg nr. T522 og geta því valdið vegfarendum skaða ef ekki er gætt vel að. Aftakaveður er á staðnum, samkvæmt upplýsingum frá Landsneti.
Ekki er straumur á línunni. Viðgerðarflokkur frá Landsneti er á leið á staðinn.