Sveitarfélögin Borgarbyggð, Hafnarfjarðarbær, Reykjanesbær, Fjarðabyggð, Grundarfjarðarbær og Álftanes hafa fengið bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga þar sem óskað er eftir greinargerð um fjárhagsstöðu þeirra í ljósi bágrar stöðu í lok síðasta árs.
Sem dæmi má nefna að fjárhagsvandi Borgarbyggðar er ekki síst tilkominn vegna gengisfallsins, en einnig hafa skuldbindingar vegna menningarhúss, sem eru um 1,8 milljarðar, reynst sveitarfélaginu þungbærar. Lán sem bæjarfélagið tók til að auka stofnféð í Sparisjóði Mýrasýslu hefur verið fellt niður.
Nánar er fjallað um þessi mál í Morgunblaðinu í dag.