Lést af slysförum í Noregi

Karlmaður á sjötugsaldri lést í dag þegar hann féll útbyrðis úr fiskibáti, sem var á leið til hafnar í vesturströnd Noregs. Fram kemur á fréttavefjum norska ríkisútvarpsins og  Aftenposten, að maðurinn hafi verið íslenskur ríkisborgari.

Aftenposten hefur eftir varðstjóra í björgunarmiðstöðinni í Sola að báturinn hafi verið á leið til hafnar í Selje í Nordfjord eftir veiðiferð. Tilkynning hafi komið um slysið klukkan 13:54 að norskum tíma, 12:54 að íslenskum tíma. Björgunarþyrla og björgunarbátur voru send á staðinn og þyrlan fann manninn í sjónum um hálfri stundu síðar. Hann var fluttur í land en úrskurðaður látinn.

Fram kemur á vef NRK að maðurinn hafi ekki verið í flotbúningi. Báturinn, sem maðurinn var á, er í eigu útgerðar í Troms. Þriggja manna áhöfn var á bátnum. Kallað var á aðstoð þegar hinir tveir um borð uppgötvuðu, að þriðji maðurinn var þar ekki lengur. Ekki er vitað hvenær hann féll útbyrðis.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert