Karlmaður lést samstundis í vinnuslysi

mbl.is

Mjög alvarlegt vinnuslys var um klukkan 16:00 í dag við nýbyggingu við Sefgarða á Seltjarnarnesi.

Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu féll þar karlmaður á þrítugsaldri niður af vinnupöllum þar sem hann var að vinna við þak hússins með þeim afleiðingum að hann lést samstundis að því er talið er.

Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.
 


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert