Fannst látinn í Hvalfirði

Karlmaður á fertugsaldri sem leitað hefur verið fannst látinn í Hvalfirði í dag. Ekkert hafði spurst til mannsins frá því um miðjan dag í gær en björgunarsveitir í Borgarfirði voru kallaðar út í morgun til leitar eftir að bíll mannsins fannst í Botnsdal.

Þyrla Landhelgisgæslunnar fann manninn um kl. 16:30. Um 150 björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert