Leit tengd Exista og Bakkavör

Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir
Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir Árvakur/Brynjar Gauti

Húsleit stendur yfir hjá lögmannsstofunni Logos á vegum embættis sérstaks saksóknara og samkvæmt upplýsingum frá Ragnari Tómasi Árnasyni, einum eiganda stofunnar, beinist leitin að gögnum sem tengjast Exista og Bakkavör en Logos hefur unnið fyrir bæði fyrirtækin. Hefur leitin staðið yfir frá því stofan opnaði í morgun.

Líkt og fram kom á mbl.is í morgun þá staðfesti Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari að embættið væri með húsleitir í gangi víða. 

Samkvæmt heimildum mbl.is er bæði leitað á Íslandi og í Lundúnum. 

Ekki hefur náðst í forsvarsmenn Exista né helstu eigendur, bræðurna Ágúst og Lýð Guðmundssyni í morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert