Konan sem féll í sprungu á Langjökli í gær var látin þegar björgunarsveitarfólk kom niður til hennar. Sjö ára sonur hennar, sem einnig féll ofan í sprunguna, var með meðvitund þegar komið var að honum.
Drengurinn var fluttur á Landspítalann í aðgerð og liggur þar enn, en ekki hafa fengist upplýsingar um líðan hans á þessari stundu. Hann hafði verið í sprungunni í rúmar fjórar klukkustundir þegar björgunarsveitarfólk náði honum upp úr henni.
Féllu í rúmlega tuttugu metra djúpa sprungu
Eins og sagt var frá á mbl.is í gær var konan og drengurinn í jeppaferð ásamt hópi fólks á vestanverðum Langjökli, þegar þau féllu niður í sprunguna, sem samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi var meira en tuttugu metra djúp.
Um klukkan eitt bárust björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Akranesi, Borgarnesi og höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að tvær manneskjur hefðu fallið í sprungu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var strax send á vettvang ásamt björgunarsveitarfólki, og lenti á jöklinum rétt fyrir klukkan hálf tvö.
Um klukkan hálf fimm hafði tekist að ná konunni upp úr sprungunni, en talið er að hún hafi látist við fallið. Klukkan rúmlega fimm tókst svo að ná syni hennar upp úr sprungunni.
Nokkrar þyrluferðir voru farnar milli höfuðborgarsvæðisins og Langjökuls, meðal annars með búnað frá rústabjörgunarsveitinni og lækna frá Reykjavík. Þá fór þónokkur fjöldi björgunarsveitarfólks landleiðina og upp á jökulinn á snjósleðum, en alls tóku rúmlega hundrað einstaklingar þátt í björguninni uppi á jöklinum.