Maðurinn sem fluttur var með þyrlu frá Stykkishólmi eftir að eldur kom upp í húsi hans er alvarlega veikur, að sögn læknis á gjörgæsludeild.
Tilkynning barst lögreglu kl 10.33 í morgun m.a. frá gestum á Hótel Stykkishólmi, en húsið blasir við frá hótelinu. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins, en miklar skemmdir eru á húsinu. Allt innbú er ónýtt. Íbúa hússins var bjargað út og var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til að flytja hann á Landspítalann. Ekki er ljóst með eldsupptök.
Húsið er í fimm húsa raðhúsalengju. Engar skemmdir urðu á öðrum húsum í brunanum.