Fannst látinn

mbl.is

Karlmaður sem var leitað í nótt og í morgun fannst látinn á ellefta tímanum í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi bendir allt til þess að hann hafi orðið úti en um eitt hundrað björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni.

Maðurinn fannst i Ölfusi og voru það björgunarsveitarmenn sem fundu manninn sem var á sextugsaldri. Maðurinn bjó á dvalarheimilinu Ási í Hveragerði.  Síðast spurðist til hans um klukkan 18:00 í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert