Sigurjón Þórðarson var kjörinn formaður Frjálslynda flokksins á landsfundi flokksins í dag en hann var einn í kjöri. Ásta Hafberg var kosin varaformaður en hún felldi Kolbrúnu Stefánsdóttur, sem hefur verið varaformaður. Þá var Grétar Mar Jónsson sjálfkjörinn í embætti ritara.
Guðjón Arnar Kristjánsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs í formannskjöri. Fram kemur á heimasíðu Frjálslynda flokksins, að Sigurjón hefði í þakkarræðu sinni sagt, að ástæðan fyrir því að flokkurinn hefði ekki orðið stærri í gegnum tíðina vera fyrst og fremst vegna þess að hann hefði alltaf beitt sér gegn sterkum ósanngjörnum hagsmunum. Það þyrfti að taka rækilega til í íslenskum stjórnmálum. Hann sagðist viss um að flokkurinn hefði sigur að lokum.