Fólkið sem varð úti að Fjallabaki í gær hét Friðgeir Fjalar Víðisson og Kristín R. Steingrímsdóttir. Friðgeir var 55 ára gamall, fæddur 22. apríl 1955, búsettur á Vesturgötu 69 í Reykjavík. Kristín var 43 ára, fædd 24. febrúar 1967, til heimilis að Kleppsvegi 108.
Lögregla hefur ekki enn tekið skýrslu af konu, sem svar í för með fólkinu en hún fannst á gangi á Fjallabaksleið í gær og var flutt með þyrlu á Landspítalann. Hún hefur fengið að fara heim af sjúkrahúsinu.