Jarðskjálftahrina er hafin undir toppi Eyjafjallajökuls. Í samráði við jarðvísindamenn á Veðurstofu Íslands hefur verið tekin ákvörðun um rýmingu sunnan jökulsins öryggisskyni. Rýmt verður frá Markarfljóti í vestri austur að Skógum og nú er verið að hringja á þá bæi sem beðnir eru um að rýma. Lögreglan á Hvolsvelli og björgunarsveitir hafa umsjón með rýmingunni. Samhæfingarmiðstöð hefur verið virkjuð og fylgst er með framvindu í samvinnu við jarðvísindamenn.
Bergþóra Þorbjarnardóttir, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni segir hrinuna „sérstaklega öfluga“ og skjálftana marga. Þeir stærstu eru yfir 2,5 stig. Þessu fylgir gosórói í toppgíg jökulsins, vestar en verið hefur og undir ís. Hrinan stendur enn.
Lögreglan á Hvolvelli hefur enn ekki nákvæma tölu á fjölda bæja sem þarf að rýma.
Jarðskjálftahrinan hófst um kl. 23 í kvöld. Virkni á svæðinu hafði verið lítil sólarhringinn þar á undan og jarðvísindamenn töldu gosinu á Fimmvörðuhálsi líklega lokið.
Þekkir þú til? Fannstu skjálfta? Býrðu á svæðinu? Vinsamlega hafðu samband á netfrett@mbl.is