Vegurinn að Leirnahverfi í sundur

Ólafur Eggertsson , Þorvaldseyri
Ólafur Eggertsson , Þorvaldseyri Ómar Óskarsson

Vegurinn inn að Leirnahverfi undir Eyjafjöllum sópaðist burtu á stórum kafla þegar flóð hljóp í Svaðbælisá, sem er við bæinn Þorvaldseyri. Gríðarlega mikið hefur gengið á í Fellsgili skammt frá bænum. Þar hefur flóðið hlaðið upp 10-15 metra háu grjótstáli.

Nokkrir bæir eru í Leirnahverfi, en vegurinn er hringvegur og því geta íbúar komist heim til sín úr annarri átt.

Í ljós hefur komið að mikið af aur, grjóti og drullu hefur borist inn á túnið á bænum Önundarhorni. Verulegt tjón hefur því orðið á túninu. Túnin á Þorvaldseyri sluppu hins vegar betur.

Bændur á Þorvaldseyri hafa unnið að því að koma vatni á fjósið. Líkur eru á að kaldavatnsleiðsalan hafi ekki farið í sundur í flóðinu eins og óttast var. Dæla, sem dælir vatninu, hafði hins vegar slegið út.

Ólafur Eggertsson bóndi á Þorvaldseyri segir ótrúlegt að líta inn í Fellsgil ofan við bæinn. Þar hafi flóðið náð að hlaða upp 10-15 metra háu grjótstáli. Þessi ummerki sýni betur en flest annað þá gríðarlegu krafta sem hafi verið að verki.

Vegurinn við Leirnahverfi er stórskemmdur
Vegurinn við Leirnahverfi er stórskemmdur Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert