Sjómaður féll útbyrðis og lést

Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug að skipinu.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug að skipinu. mbl.is/Guðmundur Karl

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNÁ var kölluð út kl. 22:42 í gærkvöldi eftir að tilkynning barst um sjómann sem féll útbyrðis af togara sem var að veiðum 67 sjómílur SV af Reykjanesi. Skipverjar voru að reyna að ná manninum um borð en það gekk illa.

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að þyrlan hafi farið í loftið kl. 23:18. Þegar komið var í loftið barst tilkynning frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um að búið væri að ná manninum um borð og endurlífgun hafin. Var þyrlulæknir í sambandi við skipstjóra úr þyrlunni. Komið var að skipinu kl. 00:02, sigu sigmaður og læknir um borð með börur og búnað. Eftir skoðun var maðurinn úrskurðaður látinn. Haldið var frá skipinu kl. 00:31 og lent í Reykjavík kl. 01:10.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert