Tvær af stúlkunum þremur sem sem slösuðust í umferðarslysi við Mánatorg í Reykjanesbæ í gærmorgun eru látnar samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild. Sú þriðja er enn á á gjörgæsludeild Landspítalans.
Stúlkurnar voru farþegar í bíl, sem fór út af veginum við Mánatorg í gærmorgun, lenti á ljósastaur og valt. Þær voru allar fluttar alvarlega slasaðar á gjörgæsludeild.
Piltur sem ók bílnum slapp lítið meiddur og var útskrifaður af sjúkrahúsi í gær.