Íslendingur myrtur í Danmörku

Frá Kaupmannahöfn
Frá Kaupmannahöfn mbl.is/Brynjar Gauti

Rúmlega fimmtugur íslenskur karlmaður lést á sjúkrahúsi í Danmörku á föstudaginn eftir að hafa orðið fyrir alvarlegri líkamsárás í síðustu viku. Maðurinn hafði, samkvæmt heimildum DV, legið á gjörgæslu í nokkra daga eftir árásina en mun hafa látist af sárum sínum eftir hádegi á föstudaginn.

Heimildir DV herma að nokkrir hafi ráðist á manninn, sem hafði verið búsettur í Danmörku í nokkurn tíma. Munu mennirnir hafa þekkst eftir því sem fram kemur í DV í dag. Árásarmaðurinn, eða mennirnir, hafa verið handteknir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert