Metsölurit fáanlegt á ný

Skýrsla rannsóknarnefndarinnar.
Skýrsla rannsóknarnefndarinnar. mbl.isErnir Eyjólfsson

Upplag þriðju prentunar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kemur í verslanir í dag en fyrri tvær prentanir skýrslunnar seldust upp. Í þriðju prentun voru prentuð 2000 eintök. Skýrslan hefur verið mest selda ritið í bókaverslunum frá því hún kom út þann 12. apríl.

Rannsóknarskýrsla Alþingis er langsöluhæst bóka hér á landi frá áramótum, samkvæmt metsölulista bókaverslana. Samkvæmt sölutölum bóksala má ætla að hún verði áfram söluhæsta bókin fram eftir ári, ef ekki allt árið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka