Samkvæmt talningu Ferðamálastofu fóru 23 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð í apríl síðastliðnum og er um að ræða 17% fækkun frá því í apríl á síðasta ári. Gosið í Eyjafjallajökli hefur haft sín áhrif, en framan af mánuði eða á tímabilinu 1.-13.apríl var 13,5% fjölgun í brottförum en á tímabilinu 14.-31. apríl nam fækkunin 40,7%. Að viðbættum 1000 brottförum erlendra gesta í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll nemur fækkunin 34,3%.
Þegar litið er til einstakra markaðssvæða má sjá fækkun frá öllum mörkuðum, mest frá Norðurlöndunum eða 26,7%. N-Ameríkönum fækkaði um 17%, gestum frá Mið- og Suður Evrópu um 14%, Bretum um 9% og gestum frá öðrum mörkuðum um ríflega 9%.
Mun færri Íslendingar fara um Leifsstöð
Frá áramótum hafa 88 þúsund erlendir gestir farið frá landinu sem er 1,8 prósenta fækkun frá árinu áður. Ríflega fjórðungur (25,7%) gesta er frá Norðurlöndunum, fjórðungur frá Bretlandi, 16,3% frá Mið- og S-Evrópu, 14% frá N-Ameríku og 18,8% frá öðrum markaðssvæðum.
Um fimmtungsfækkun var í brottförum Íslendinga um Leifsstöð í apríl, voru 19.100 í apríl 2010 en 24.600 árinu áður. Brottförum Íslendinga frá áramótum hefur fjölgað um 2,5% í samanburði við sama tímabil á fyrra ári. Sjá nánar hér
Nýr skýrsla um mögulega framvindu eldgossins
Gefin hefur verið út skýrsla sem unnin var að beiðni Ólafar Ýrr Atladóttur ferðamálastjóra. Var farið í þá vinnu að móta og framkvæma verkefni í anda sviðsmyndagerðar (scenarios) um hugsanlega atburðarrás við framvindu eldgossins í Eyjafjallajökli og áhrif náttúruhamfaranna á ferðaþjónustuna.
Það er mat skýrsluhöfunda að þessi tvö orð, öryggi og orðspor séu
lykilorð til að styrkja enn frekar ferðaþjónustuna í náinni framtíð.
Koma þarf á framfæri að hér sé gætt fyllsta öryggis þrátt fyrir hamfarir
og að öll þjónusta sé til staðar til að mæta hugsanlegum afleiðingum
þeirra.