Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa valdið dauða annars manns í Reykjanesbæ í nótt. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins bárust lögreglu ábendingar eftir að vitni sáu blóðugan mann á gangi.
Lögreglan er að yfirheyra hinn handtekna, en til hans náðist í Reykjanesbæ um klukkna tíu í morgun. Árásarmaðurinn er liðlega tvítugur en hinn látni var á sextugsaldri. Búið er að bera kennsl á hinn látna. Ekki er unnt að greina frá nafni hans að svo stöddu.
Samkvæmt sömu heimildum leikur grunur á að um ofbeldisglæp hafi verið að ræða og voru miklir áverkar á líkinu þegar það fannst.
Fjöldi lögreglumanna á Suðurnesjum hefur unnið að rannsókn málsins með aðstoð lögreglumanna frá tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn málsins er þó enn á frumstigi.
Þeir sem telja sig geta veitt lögreglu einhverjar upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Lögregluna á Suðurnesjum í síma 420 1700 eða á netfangið dc@dc.is.