Lögreglunni á Selfossi barst tilkynning klukkan 15:34 í dag um að maður í sviffallhlíf hafi skollið utan í hamravegg vestan í Ingólfsfjalli á móts við Hvammsveg í Nýbýlahverfi nánar tiltekið á milli Arnarnípu og Hólsstaðagils. Lögregla, sjúkralið og björgunarsveitir frá Selfossi og Hveragerði fóru þegar á staðinn.
Fallhlífarmaðurinn lenti ofarlega í fjallinu og björgunarsveitarmenn fóru á staðinn með sértækan búnað. Maðurinn var ekki með lífsmarki þegar björgunarmenn komu að honum.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi var félagi mannsins vitni að slysinu og tilkynnti strax til Neyðarlínu. Maðurinn mun hafa lagt upp af fjallinu í sviffallhlífinni en hægur vindur af norðvestri borið hann að hamrabeltinu með þessum hörmulegum afleiðingum. Hinn látni er af erlendu bergi brotinn og var búsettur á höfuðborgarsvæðinu en nafn hans er ekki hægt að gefa upp á þessari stundu.
Það óhapp varð á meðan björgunaraðgerðir stóðu yfir að eldur kviknaði í sinu við fjallið og mikinn reyk lagði yfir svæðið sem björgunarmenn voru á sem var til mikilla óþæginda. Eldurinn kviknaði út frá heitu pústkerfi bíls félaga fallhlífarmannsins sem hafði hraðað sér að staðnum eftir að hann sá félaga sinn lenda á fjallinu. Slökkvilið frá Brunavörnum Árnessýslu og Slökkviliði Hveragerðis sáu um slökkvistarf.
Lögreglan á Selfossi fer með rannsókn málsins og við frumrannsókn var
leitað Rannsóknarnefndar flugslysa en slys af þessu tagi heyrir þó ekki
undir nefndina.