Enn vex ættbogi Svandísar á Bakkatjörn

Hvað skyldi
Hvað skyldi "karl" Svandísar heita? mbl.is/Ómar Óskarsson

Álftin Svandís á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi er nú með fjóra unga og sat fjölskyldan fyrir hjá ljósmyndara Morgunblaðsins í gær, ef til vill vegna þess að ungarnir fóru sína fyrstu sundferð þótt ekki sé hægt að fullyrða það með vissu.

Vatnið er afar grunnt við hólmann þar sem hreiðrið er. Parið öslaði út í vatnið með ungana og hóf að róta upp æti af botninum. Ljósmyndari vildi fá fuglana nær og kastaði til þeirra brauðbitum sem þegnir voru með mikilli ánægju.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert