Fertugur íslenskur karlmaður drukknaði í nótt við sjósund hjá Stykkishólmi. Að sögn lögreglu lagðist maðurinn til sunds um kl. 23.00 frá tanga sunnan við sjúkrahúsið en þar er sterkur straumur. Þegar hann skilaði sér ekki hófst leit. Líkið fannst um tvöleytið í sjónum um einn km frá tanganum.
Maðurinn var vanur sjósundmaður og fæddur 1970, að sögn lögreglunnar. Hann var gestkomandi í Stykkishólmi og ætlaði að fá sér stuttan sundsprett. Þegar hann kom ekki til baka var þegar hafin leit.
Lögregla og sjúkraflutningamenn fóru strax á tveimur bátum og fundu þeir lík mannsins í sjónum alla vega einn km frá tanganum, að mati lögreglunnar. Bátaflokkar allra björgunarsveita á Snæfellsnesi voru á leið til leitar þegar maðurinn fannst.