Nær enginn gosmökkur hefur verið frá Eyjafjallajökli í nótt og morgun, aðeins litill gufubólstur sem kemur upp úr eldgígnum að því er sjá má á myndum úr vefmyndavélum.
Vísindamenn sögðu í gær, að gosið virðist liggja alveg niðri og engar vísbendingar voru um að kvika kæmi upp. Gufumökkurinn nái þó í 3 km hæð samkvæmt athugunum flugmanna, ljós og gufublandinn.
Af óróamælum Veðurstofu Íslands má sjá, að lítill sem enginn virkni hefur mælst undanfarin sólarhring.