Andlát: Þórhallur Halldórsson

Þórhallur Halldórsson.
Þórhallur Halldórsson.

Þórhallur Halldórsson mjólkuriðnaðarverkfræðingur andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi 23. maí síðastliðinn, 87 ára að aldri.

Þórhallur fæddist á Hvanneyri 8. desember 1922. Foreldrar hans voru Halldór Vilhjálmsson, skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri, og Svava Þórhallsdóttir kennari.

Þórhallur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1942, B.Sc.-prófi 1945 og M.Sc.-prófi í mjólkurefnafræði frá Wisconsin-háskóla í Bandaríkjunum 1946. Hann tók próf í heilbrigðiseftirliti og heilbrigðisfræði í Svíþjóð 1951 auk þess sem hann kynnti sér heilbrigðiseftirlit í Danmörku og Sviss.

Þórhallur var ráðunautur Reykjavíkur um mjólkurmál 1947-1948, fulltrúi borgarlæknis í Reykjavík 1948-1951 og heilbrigðisfulltrúi Reykjavíkurborgar 1951-1966. Hann var framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar 1966-1982 og forstöðumaður heilbrigðiseftirlitssviðs Hollustuverndar ríkisins 1982-1992. Hann var ráðunautur Seltjarnarnesbæjar í heilbrigðismálum 1961-1982, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar 1966-1980 og formaður matsnefndar vínveitingahúsa 1965-1997. Eftir hann birtust ýmsar greinar um mjólkurmál, umhverfis- og heilbrigðiseftirlit. Þórhallur var þríkvæntur og eignaðist sjö börn, þar af þrjá fóstursyni og eina kjördóttur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert