Harma banaslys við Stykkishólm

Sjósunds- og Sjóbaðsfélag Reykjavíkur (SJÓR)  og Sundsamband Íslands (SSÍ) harma banaslysið sem varð við Stykkishólm aðfaranótt síðastliðins hvítasunnudags og votta aðstandendum hins látna innilega samúð. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Sjósund er holl og góð íþrótt sem reynir á margar hliðar andlegs og líkamlegs atgervis.  Sjórinn getur verið varasamur ef ekki er farið að öllu með gát.   Þess vegna er nauðsynlegt að sundfólk kynni sér vel aðstæður þar sem það hyggst leggjast til sunds og sundfólk ætti aldrei að vera eitt á ferð," segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert