Styrkur svifryks á höfuðborgarsvæðinu fer væntanlega yfir heilsuverndarmörkin í dag, samkvæmt upplýsingum frá umhverfissviði Reykjavíkurborgar. Svifryk berst sennilega að mestu leyti frá öskufallssvæðinu við Eyjafjallajökul. Einnig má búast við svifryksmengun í Reykjavík á morgun.
Hálftímagildið klukkan 12:30 í dag á mælistöð Reykjavíkurborgar við Grensásveg mældist 116 míkrógrömm á rúmmetra og í Fjölskyldu – og húsdýragarðinum var það 86.
Meðalgildið frá miðnætti við Grensásveg í hádeginu var 85 míkrógrömm á rúmmetra. Heilsuverndarmörk svifryks á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.
Svifryk berst sennilega að mestu leyti frá öskufallssvæðinu við Eyjafjallajökul. Ástæða er til að benda þeim á sem eru með viðkvæm öndunarfæri s.s. lungnasjúkdóma eða astma að forðast mikla útiveru í dag og ef til vill á morgun - en líkur eru á betri loftgæðum á sunnudaginn, samkvæmt upplýsingum frá umhverfissviði Reykjavíkurborgar.
Suðaustlægar áttir eru ríkjandi og töluverður vindur er til staðar. Ekki er búist við úrkomu í kvöld. Draga mun úr vindstyrk á morgun en áfram eru líkur á svifryksgildum yfir heilsuverndarmörkum á höfuðborgarsvæðinu.