Gríðarlegt svifryk er á Hvolsvelli og segja heimamenn að varla sjáist á milli húsa. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á Hvolsvelli þá er skyggnið á Suðurlandsvegi milli Hvolsvallar og Víkur í Mýrdal um 100 metrar. Biður lögregla fólk um að vera sem minnst útivið enda hættulegt fyrir fólk með astma og aðra sjúkdóma í öndunarfærum að vera úti.
Blankalogn og 16-17 stigi hiti er á Hvolsvelli. Að sögn heimamanna eru afar fáir á ferli og ef fólk fer út úr húsi setur það á sig rykgrímur.
„Þetta minnir næstum á kvikmyndir um afleiðingar kjarnorkustyrjaldar," sagði íbúi í bænum við mbl.is. „Fólk er eins og hálft dofið og því líður hreinlega illa."
Samkvæmt mælingu á svifryki á Hvolsvelli þá mælist það 1233 míkrógrömm á rúmmetra. Heilsuverndarmörk svifryks á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Í Vík í Mýrdal mælist svifrykið 368 míkrógrömm á rúmmetra. Mistur er einnig í Árnessýslu.
Í Reykjavík er svifrykið komið í 271 míkrógramm á rúmmetra og er það komið vel yfir hættumörk.