Ferðamaðurinn sem féll í Látrabjargi í kvöld er látinn. Verið er að flytja líkið með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Maðurinn var þýskur og á miðjum aldri, hér á ferðalagi með konu sinni. Hann féll þegar hann var að taka myndir á bjargbrúninni en ekki er vitað nánar hvernig það gerðist.
Jónas Sigurðsson, yfirlögregluþjónn á Patreksfirði var á vettvangi í dag þegar björgunaraðgerðir stóðu yfir. Hann segir að maðurinn hafi fallið um 140-160 metra og hafi líklega látist samstundis. Ómögulegt sé að segja nákvæmlega hvað varð til þess að maðurinn féll, hann hafi verið við ljósmyndun þegar hann hrapaði. Jónas segir aðstæður á bjarginu ekki hættulegri en þær hafi alltaf verið, þar sé alltaf ástæða til að gæta almennrar varúðar.
„Það þarf alltaf að fara varlega í svona bjargi. Það er mjög varhugavert að fara fram á brún, lundinn grefur svo mikið þannig að það er alltaf hættulegt að vera nærri bjargbrúninni." Erfitt sé hinsvegar að segja með óyggjandi hætti hvort brúnin hafi gefið sig undan manninum.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem banaslys verður í Látrabjargi, þótt ekki sé vitað til þess að ferðamaður hafi nokkurn tíma fallið þar áður. Þegar bjargsig voru stunduð þar reglulega voru slys hinsvegar tíð og árið 1926 fórust þar tveir menn við eggjatöku.
Um 60 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerum á bjarginu í dag auk lögreglu. Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarbáturinn Vörður frá Patreksfirði voru send á staðinn.